mikið rosalega var gaman að hitta kellurnar aftur eftir langt jólafrí......og mikið rosalega var gaman að sjá að þær eru allar jafn hressar og gú-gú og áður!!! mér létti stórum því annars hefðum við ekki átt neitt sameiginlegt áfram......nema þá kannski handavinnusýkina :O)
þær voru náttúrulega allar með flott verkefni í höndunum og fram úr þeim sköruðu náttúrulega þessir líka fínu sokkar sem hún Guðbjörg var að prjóna (hehehe) og lokaniðurstaðan var sú að annað hvort var barnið með annan fótinn minni en hinn eða altént hinn fótinn stærri en annan......??!!
Svo lærðum við nýja prjónaaðferð hjá Kristínu en það felst í því að vera örlítið fljótfær og fórna höndum yfir því að vera búin að gera vitleysu, rífa svo lykkjurnar af prjóninum, rekja örlítið upp og uppgötva svo að þetta var rétt hjá þér upphaflega og þú hefðir aldrei þurft að rekja upp........
við hinar reyndum svo að druslast áfram í okkar bútasaumi (sem gekk nú alveg ágætlega) og það var ákveðið að við myndum hittast annan miðvikudag í mánuði en svo verðum við líka að muna að koma í ´hina kirkjuna´ næsta miðvikudag :O) kl.19.30
No comments:
Post a Comment